Til baka á forsíðu
FAIL (the browser should render some flash content, not this).

 


Verslunarfagnámið var þróað af Fræðslumiðstöð atvinnulífsins að ósk og í samráði við Samtök verslunar- og þjónustu.

Með náminu er verið að koma á móts við brýna þörf fyrir aukna, markvissa menntun handa starfsfólki í verslunum.

Störf verslunarfólks hafa verið að breytast hratt á síðustu árum samfara aukinn tæknivæðingu verslana, fjölbreyttara vöruúrvali, nýrra viðskiptavina með fjölbreyttari bakgrunn og óskir og ekki síst aukin samkeppni verslana.

Það er ekki aðeins að vinnudagur verslunarfólks sé langur, álagið á líkama og sál er einnig mikið. Langar stöður og mikið áreyti er hluti starfsumhverfisins. Ofan á það bætist að bæði fyrirtæki og viðskiptavinir gera kröfu um víðtæka vöruþekkingu, hátt þjónustustig og mikla samskiptafærni. Þrátt fyrir álagið eru verslunarstörf lífleg og skemmtileg. Það eru fáar starfsgreinar sem bjóða upp á jafn mikil samskipti og verslunarstarfið.

Verslunarfagnámið styrkir verslunarfólk til að takast á við fjölbreytt verkefni verslunarinnar, en ekki síður er lögð áhersla á að einstaklingurinn kanni eigin styrkleika og efli þá.

Námið er metið til eininga á framhaldsskóastigi.

Símenntunarmiðstöðvarnar sjá um kennslu í hverjum landshluta. Verslunarfagnámið er nú kennt hjá Mími - símenntun í Reykjavík og Símey á Akureyri.