Fagráð verslunar- og þjónustugreina (FVÞ) hefur umsjón með vefnum. Fagráðið var stofnað árið 2005 af VR, LÍV og SA. Hlutverk FVÞ er að efla fræðslu meðal starfsfólks í verslunum. Hlutverki sínu sinnir FVÞ með því að kynna námsleiðir sem í boði eru, kynningum á Starfsmenntasjóði verslunar- og skrifstofufólks (starfsmennt.ir), samstarfi við fræðsluaðila í fullorðinsfræðslu um þróun og gerð námsleiða sem nýtast starfsmönnum til að efla sig í einkalífi og starfi.
Starfsgreinaráð skrifstofu- og verslunargreina (SSV) hefur gert samning við FVÞ um að FVÞ sinni verkefnum fyrir SSV og hafi m.a. umsjón með þessum vef. Starfsmaður FVÞ og umsjónarmaður vefsins er Björn Garðarsson (bjorn(hjá)frae.is).