Viðmið um námsefni
Leiðarvísir um gæði námsefnis og leiðbeiningar fyrir námsefnishöfunda vegna starfsnáms í þjónustugreinum verslunar- og skrifstofufólks.
Verkefni unnið af Fræðslumiðstöð atvinnulífsins fyrir starfsgreinaráð fjármála-, verslunar,- og skrifstofugreina.
• Greinargerð vegna verkefnis
• Mælistika og leiðbeiningar
• Námsefnisstoðkerfi
• Námsgagnabanki
• Greiningartæki fyrir námsnálgun
Afurðir verkefnisins
1. Mælistika og leiðbeiningar
Grunnurinn að viðmiðunum er mælistika sem hér fylgir með sem ein af afurðum verkefnisins.
Mælistikan gefur nokkuð nákvæman ramma um þá þætti sem eru afgerandi fyrir árangursríkt námsefni og notkun þess við nám og kennslu. Hún gegnir jafnframt því hlutverki að vera leiðarvísir fyrir námsefnishöfunda og fræðsluaðila og matstæki fyrir eftirlitsaðila (s.s. starfsgreinaráð) en nýtist um leið fleirum í almennri gæðaviðleitni.
2. Námsefnisstoðkerfi fyrir hvern áfanga
Tillögurnar eru því lýsing á hvers konar námsefni þarf að vera fyrir hendi til að fullnægja kröfum námskrárinnar (learning outcome) eins og þær birtast í námsskrá.
Það fer síðan eftir því hvernig áfangarnir eru skipulagðir/framkvæmdir/samþættir hvernig leiðbeiningarnar nýtast og kemur þá í hlut þeirra sem kenna eða stýra viðkomandi áföngum að velja úr gagnabankanum það efni sem hentar sem hentar miðað við stoðirnar 4 í námsefnisstoðkerfinu og þarfir nýrrar kynslóðar fyrir öðruvísi námsefni og nálgun.
3. Drög að námsgagnabanka
Um er að ræða yfirlit yfir aðgengilegt námsefni, fyrst og fremst erlent, sem flokkað er í samræmi við ýmsa þætti mælistikunnar. Gagnabankinn er útbúinn sem tvö hugkort yfir persónufærni og fagfærni sem ætlað er að gagnast þeim sem standa frammi fyrir því að velja efni eftir þeim markmiðum sem stefnt er að í áfanganum.
4. Sýnishorn af greiningartækjum fyrir mismunandi námsnálgun
Nokkur sýnishorn yfirlita og mælitækja fyrir námsnálgun fylgja einnig með þessu verkefni.
Hér er Viðmið um námsefni - Mælistikan, stoðkerfi, gagnabanki og sýnishorn af greiningartækjum (3,3 MB, pdf-skjal)