Til baka á forsíðu
FAIL (the browser should render some flash content, not this).

 


Stígandi náms

Starfsnám þjónustugreina greinist í skólanám og vinnustaðanám. Í grunnnámi er lögð áhersla á að veita almenna menntun og undirstöðuþekkingu í sameiginlegum faggreinum námssviðs¬ins. Eins er áhersla lög að byggja upp persónulega færni nemans, s.s. í samskiptum, fram¬komu, þjónustu og hópvinnu. Í sérnámi er unnið áfram með faglega þætti sérsviðsins en jafnframt lögð áhersla á þjálfuð skipuleg og markviss vinnubrögð. Vinnustaðanám hefst á seinni stigum námsins og miðar að því að þjálfa og undirbúa nemann til þess að takast á við störf á viðkomandi sérsviði, eins og fyrr greinir.
Vinnustaðanám er mikilvægur þáttur í námi nemandans og tengist markmiðum námskrár í viðkomandi greinum. Um verulega hagsmuni nemenda og atvinnulífs er að ræða. Hagsmunir nemandans felast í því að kynnast kröfum og væntingum atvinnulífs um færni og hæfni í greinunum, hagsmunir fyrirtækjanna felast í því að innleiða í nám nemandans og námskrár greinanna væntingar fyrirtækja og stofnana um þekkingu og færni í verslunar- og skrifstofu¬störfum. Vinnustaðanám miðar þannig að því að auka tengsl atvinnulífs og skóla.
Námskráin byggir á þörfum greinanna fyrir þjálfað starfsfólk á sviði verslunar- og skrifstofu¬greina. Tveggja ára hagnýtt nám eykur möguleika þeirra sem ljúka náminu og uppfylla markmið námskrár að fá vinnu við verslunar- og skrifstofustörf og eins hafa fyrirtæki og stofnanir betri möguleika að ráða til sín fólk sem uppfyllir almennar kröfur fyrirtækjanna um þekkingu og færni í greinunum.