Námsmat
Tilgangur námsmats er að kanna að hve miklu leyti nemandi hefur náð markmiðum námsins sem sett eru í viðkomandi áföngum. Kennarar í skóla og á vinnustað eru hvattir til þess að meta nám nemenda með fjölbreytilegum hætti og gefa umsagnir. Umfang námsmats skal að jafnaði vera í samræmi við kennslu í viðkomandi áfanga.
Námsmat hefur mikið notagildi í kennslu í þjónustugreinum. Stefnt skal að því að afla marktækra upplýsinga um árangur nemenda og fylgjast vandlega með því hvernig þeim gengur að ná þeim markmiðum sem aðalnámskrá og síðar skólanámskrá setur. Á þennan hátt getur kennari fylgst með framförum nemenda og gert sér grein fyrir áhrifum og þróun kennslunnar.
Í kennslunni eru margir möguleikar á því að kanna og meta námsárangur og getu nemenda. Dæmi um möguleika á útfærslu námsmats eru verkefni af ýmsu tagi sem nemendur leysa í kennslustundum, í heimavinnu eða í vinnustaðanámi. Einnig má nefna skrifleg eða verkleg próf sem lögð eru fyrir nemendur. Æskilegt er að kennarar og tilsjónarmenn nýti ýmsa möguleika á framsetningu námsmats.
Þegar nemandi lýkur starfsnámi þjónustugreina útskrifast hann með formlegum hætti og fær útgefið prófskírteini.