Fjarnám fyrir stjórnendur og eigendur verslunar- og þjónustufyrirtækja.
Margir sem starfa við verslun og þjónustu gætu styrkt stöðu sína verulega á vinnumarkaði fengju þeir viðurkenningu á þekkingu sinni og færni. Tækifæri til virkrar faglegrar símenntunar á þessu sviði hafa verið takmörkuð fram að þessu. Verkefnið Retail Management for Adults in Lifelong Learning (RetAiL) miðar að því að mæta þessari þörf með því að skapa sveigjanlegt námsframboð sem einstaklingurinn getur lagað að sínum þörfum. Námsefni á sviði verslunar- og þjónustu byggist m. a. á efni sem stofnanirnar sem standa að verkefninu nota nú þegar. Það verður þróað og aðlagað svo það henti til kennslu fullorðinna í fjarnámi.
Námsefninu hefur verið skipt í níu sjálfstæða áfanga og efni þeirra skilgreint út frá þörfum hvers þátttökulands fyrir sig. Áfangarnir eru: Innkaup og sala, hagfræði, fjármál, upplýsingatækni, vinnuréttur, stjórnun 1 og 2, markaðsfræði og sölutækni.
Taka má hvern áfanga sérstaklega en saman mynda þeir heildstæða námsbraut. Kjósi nemendur verður hægt að ljúka námsbrautinni á tveimur árum samhliða starfi.
Gert er ráð fyrir því að væntanlegir nemendur séu fullorðið fólk sem starfað hefur við verslun og þjónustu um nokkurt skeið. Námið krefst sjálfstæðis í vinnubrögðum en einnig er gert ráð fyrir samvinnu nema. Um fjarnám er að ræða og lögð er áhersla á að hafa námsumhverfið sveigjanlegt svo það geti mætt kröfum nemendanna.
Ávinningur af að ljúka náminu er margvíslegur. Þátttakendur styrkja sig í starfi, en læra einnig að líta starf sitt öðrum augum og sjá ný tækifæri. Þetta skilar sér í aukinni starfsánægju sem birtist í ánægðari viðskiptavinum. Nemendur öðlast innsýn í þær kröfur sem gerðar eru til þeirra sem starfa við verslun- og þjónustu í Evrópu og verða þannig hæfari til að sækja um störf á alþjóðlegum markaði.
Námið verður í boði hjá Verzlunarskóla Íslands frá 1. janúar 2010.

RetAiL-verkefnið er styrkt af Leonardo da Vinci starfsmenntaáætlun Evrópusambandsins um yfirfærsluverkefni. Verzlunarskóli Íslands stýrir verkinu en auk hans standa að því Fræðslumiðstöð atvinnulífsins, The North Highland College í Thurso í Skotlandi og TAMK- háskólinn í Tampere í Finnlandi.
Allir þátttakendur hafa víðtæka reynslu af kennslu og þróun kennsluefnis, jafnt í hefðbundnu námi sem fjarnámi.
Frekari upplýsingar er að finna á vefslóðinni http://leoretail.com