Til baka á forsíðu
FAIL (the browser should render some flash content, not this).

 


Námsskrár Fræðslumiðstöðvar atvinnulífsins eru ætlaðar fullorðnum námsmönnum.

Menntamálaráðuneytið hefur samþykkt að meta námsskrárnar til styttingar á námi í fram­haldsskóla. Mat hverrar námsskrár um sig kemur fram í inngangi og sérstökum kafla um mat til styttingar náms í framhaldsskóla.

Námsskrárnar eru gefnar út af Fræðslumiðstöð atvinnulífsins með það að markmiði að auka skilvirkni og gæði námstilboða sem fullorðnir fá, gera tilboðin gagnsærri og auðvelda mat á þeim til styttingu á framhaldsskólanámi.

Nánari upplýsingar er að finna á vef Fræðslumiðstöðvar atvinnulífsins (frae.is) 

Dæmi um einingabærar námsbrautir eru:

Aftur í nám 95 kest, allt að 7 einingar. Tilgangur námsins er að styrkja sjálfstraust námsmanna, þjálfa þá í lestri og skrift með aðferðum Ron Davis og búa þá undir frekari þjálfun eftir að námskeiðinu lýkur.
Grunnmenntaskólinn 300 kest,  allt að 24 einingar. Ætlaður fólki á vinnumarkaði sem vill efla sig í almennum greinum.
Fiskur og ferðaþjónusta 300 kest, allt að 24 einingar. Tilgangur námsins er að auka færni, faglegt stolt og jákveðni starfsmanna í ferðaþjónustu þar sem afkoman byggist á nýtingu sjávar og ferskvatns.
Fjölvirkjar 170 kest, allt að 13 einingar. Ætlað lykilstarfsmönnum fyrirtækja í iðnaði, framleiðslu og þjónustu.
Færni í ferðaþjónustu I 60 kest, allt að 5 einingar. Ætlað starfsmönnum í ferðaþjónustu eða þeim sem stefna að starfi í greininni. Fyrsti hluti námsins getur hentað fyrir nýliða eða sumarstarfsfólk.
Grunnnámskeið fyrir fiskvinnslufólk 60 kest, allt að 5 einingar. Ætlað 18 ára og eldri, sem hafa stutta skólagöngu að baki og starfa við verkun og vinnslu sjávarafla.
Grunnnám fyrir skólaliða 70 kest, allt að 6 einingar. Ætlað starfandi skólaliðum en getur einnig nýst stuðningsfulltrúum og leiðbeinendum á leikskólum.
Landnemaskólinn 120 kest, allt að 10 einingar. Ætlaður nýjum Íslendingum á vinnu-markaði, sem vilja þjálfa íslensku og kynna sér samfélagið.
Laugar, lindir og böð 107 kest, allt að 9 einingar. Ætlað starfsfólki í ferðaþjónustu.
MFA-skólinn 350 kest, allt að 27 einingar. Ætlaður atvinnulausum.
Skref til sjálfshjálpar í lestri og ritun 60 kest, allt að 5 einingar ætlað starfandi fólki með stutta skólagöngu sem á við lestrar- og ritunarerfiðleika að etja.
Trúnaðarmannanámskeið I 81 kest, allt að 6 einingar. Ætlað trúnaðarmönnum á vinnustöðum.
Trúnaðarmannanámskeið II 61 kest, allt að 5 einingar. Ætlað trúnaðarmönnum á vinnustöðum.
Verslunarfagnám 1020 kest, allt að 51 eining. Ætlað fólki sem vinnur almenn störf í verslunum.
Þjónustuliðar - grunnnám 60 kest, allt að 5 einingar. Ætlað þeim sem starfa við ræstingar, hreingerningar eða sótthreinsun, starfa í býtibúrum, borðstofum, kaffistofum, matsölum eða þvottahúsum.
Öryggisvarðanám 300 kennslustundir, allt að 24 einingar. Ætlað þeim sem eru eldri en 20 ára, með stutta skólagöngu og starfa hjá fyrirtæki sem annast öryggisþjónustu í atvinnuskyni.
Vöruflutningaskólinn 339 kest, allt að 23 einingar. Ætlaður starfsmönnum sem annast flutninga og geymslu varnings.